Landsmót æskulýðsfélaga kirkjunnar verður haldið á Hvammstanga um komandi helgi, 19.-21. október 2007. Þangað munu siglfirsk ungmenni steðja, 32 talsins, úr 8., 9. og 10. bekk, og mun þetta vera fjölmennasti þátttökuhópurinn. Annars verða þar fulltrúar 22 æskulýðsfélaga af öllu landinu, eða samtals 309 ungmenni.
Dagskrá mótsins er svona:
Föstudagur
19.00-20.00 Gestir koma á staðinn. Kvöldmatur í félagsheimili.
21.00 Kvöldvaka í félagsheimili söngur, léttmeti, hugvekja.
22.00 Frjáls tími, sundlaugarpartý, opið íþróttahús o.fl.
00.00 Helgistund í kirkjunni með öllum. Söngur, hugvekja.
00.30 Allir í háttinn.
01.00 Svefnfriður.
Laugardagur
09.00 Vakið.
09.15-10.15 Morgunmatur.
10.30 Morgunstund í félagsheimili. Biblíuleshópar.
12.30-13.30 Hádegisverður. A og B.
14.00-17.00 Hópavinna, smiðjur og verkstæði. Hressing í hópunum.
17.00 Frjáls tími. Sundlaug opin, íþróttahús, gönguferð um bæinn, fótboltamót milli félaga (skráning á föstudagskvöld) o.fl.
19.30 Kvöldmatur í félagsheimili. A og B.
21.00 Kvöldvaka í félagsheimili. Framlag frá félögum og hópum. Allir í búningum.
22.30 Dansleikur í félagsheimili. Búningaball. Hljómsveitin Hvar er Mjallhvít sem var í fyrra leikur.
00.30 Helgistund í kirkju. Fyrst allir, síðan frjálst en aðrir fara í háttinn.
02.00 Ró.
Sunnudagur
09.30 Vakið. Tiltekt og frágangur.
10.00 Morgunmatur.
11.00 Messa í Hvammstangakirkju.
12.00-13.00 Léttur hádegisverður.
13.30 Brottför frá Hvammstanga.
Sigurður Ægisson, 16/10 2007
Nemendur í 9. og 10. bekk athugið
Munið fundinn í safnaðarheimilinu fimmtudagskvöldið 4. október kl. 20.00, vegna Landsmóts æskulýðsfélaga á Hvammstanga 19.-21. október næstkomandi.
Sigurður Ægisson, 2/10 2007
Siglufjarðarkirkja næstkomandi sunnudag, 7. október
Kl. 11.15: Kirkjuskóli.
Kl. 14.00: Almenn messa sem átti að vera fellur niður vegna organistaleysis. Nýr organisti, Rodrigo J. Thomas frá Brasilíu, er væntanlegur síðar í þessum mánuði.
Kl. 16.00: Tónleikar Kirkjukórs Ólafsfjarðar.
Kl. 20.30: Fundur með fermingarbörnum vetrarins og aðstandendum þeirra, þar sem ákveðið verður hvenær skal ferma næsta vor.
Sigurður Ægisson, 2/10 2007
Í kvöld, 19. september, kl. 20.30 verða þeir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson með tónleika í Siglufjarðarkirkju en þeir hafa undanfarið verið á ferð um landsbyggðina og þá einmitt haldið tónleika í kirkjunum. Í gærkvöldi voru þeir t.a.m. í Sauðárkrókskirkju. Þetta mun vera um tveggja klukkustunda dagskrá hjá þeim félögum.
Sigurður Ægisson, 19/9 2007
Sunnudaginn 16. september hófst kirkjuskólinn. Nokkrar myndir sem teknar voru þá eru komnar inn í myndabankann. Best er að velja Flýtileið og síðan möppuna Kirkjuskóli 2007-2008 til að skoða þær.
Næsti tími verður á sunnudaginn kemur, 23. september, kl. 11.15-12.45.
Sigurður Ægisson, 18/9 2007
Kirkjuskólinn hefst næstkomandi sunnudag, 16. september, og verður frá kl. 11.15 til kl. 12.45 eins og í fyrra. Af þessu tilefni verður boðið upp á heitt kakó og meðlæti í fyrsta tíma um leið og nýja kirkjuskólabókin, sem fjallar um Danna og Birtu, verður kynnt sem og öll tilhögun starfsins. Kirkjuskólinn verður í umsjá Rutar Viðarsdóttur og Sigurbjargar Gunnólfsdóttir, auk undirritaðs.
Um kvöldið kl. 20.00 verður svo kertamessa á rólegu nótunum. Er hún góður undirbúningur fyrir vinnuvikuna, í rökkvuðu og afslöppuðu umhverfi við ljúfan söng.
Verið velkomin.
Sigurður Ægisson
Sigurður Ægisson, 11/9 2007
Í gær voru settar hér inn “nýjar” myndir. Annars vegar ein sem tekin var árið 2004 af árgangi 1940 sem fermdist 16. maí 1954 og hins vegar nokkrar úr Vatnaskógarferð haustið 2005.
Sigurður Ægisson, 9/9 2007
Sigurður Ægisson, 8/9 2007
Fermingarfræðsla vetrarins hófst með dvöl í Vatnaskógi í Svínadal 20.-24. ágúst síðastliðinn eins og verið hefur undanfarin ár. Innan skamms munu börnin svo fara að hitta prest sinn vikulega og taka upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Lesa áfram …
Sigurður Ægisson, 4/9 2007
Hátíðarguðsþjónustan 2. september, þar sem minnst var 75 ára vígsluafmælis Siglufjarðarkirkju 28. ágúst síðastliðinn, þótti takast afar vel og var kirkjan þéttsetin.
Lesa áfram …
Sigurður Ægisson, 4/9 2007